Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samningin ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar.