Fleiri eru hlynntir en andvígir því að fara í aðildarviðræður við ESB, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir DV um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram 29. ágúst.Þar verður þjóðin spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ og valmöguleikarnir verða „Já“ eða „Nei“.53,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnun Maskínu sögðust ætla að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni og 46,9 prósent ætla að kjósa nei.Ef litið er til allra svarenda sögðust 44,5 prósent ætla að kjósa já, 39,4 prósent nei og 14,6 prósent sögðust ekki vita hvernig þau myndu kjósa. 1,5 prósent svarenda vildi ekki svara. FÓLK Á FIMMTUGSALDRI JÁKVÆÐAST FYRIR AÐILDARVIÐRÆÐUM Lítill munur er á svörum milli kynja. 53,4 prósent karla ætla að kjósa já og sama á við um 52,6 prósent kvenna.52,3 p