Jarðböðin taka miklum breytingum

Framkvæmdir hafa staðið yfir við jarðböðin við Mývatn í nokkur ár og þau hafa verið lokuð síðan um áramót. Nú er farið að sjá fyrir endann á framkvæmdum og stefnt að því að opna 30. júní.Þar er núna nýtt þjónustuhús, ný búningaaðstaða og stærra lón. Breytingarnar hafa tekið langan tíma enda hefur gengið á ýmsu. Stór hellir fannst við framkvæmdirnar, um 12 metra djúpur og 105 metra langur. Vonir standa til að hægt verði að sýna ferðamönnum hellinn en hann er í friðlýsingarferli eins og er.
Jarðböðin taka miklum breytingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd