Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook.