Tveir ungir menn, 16 og 18 ára, eru í haldi lögreglu eftir að tvítugur maður fannst látinn í fljótinu Goðn, eða Gudenå, á Jótlandi í gær. Þeir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag, grunaðir um að hafa slegið tvítuga manninn, kyrkt hann og drekkt. Þeir neituðu að hafa drepið manninn en játuðu á sig grófa líkamsárás. Samkvæmt frétt DR þekktust mennirnir fyrir atvikið og hafði orðið sundurorða með ofangreindum afleiðingum.politiet.dk