Ný innisundlaug í Sundlaug Akureyrar verður opnuð á næstu vikum, segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Nýja laugin er uppfærsla á gömlu innilauginni sem var um 70 ára gömul.Gísli segir allt tilbúið en nú þurfi bara að setja vatn í nýju laugina og prófa hana. Síðustu tvær vikur hafi staðið til að fylla laugina en sumarfrí iðnaðarmanna hafi tafið ferlið aðeins.„En þegar þetta er búið að taka tvö ár þá skipta vikur ekki miklu máli,“ segir Gísli.Framkvæmdirnar hafa gengið vel að sögn Gísla. „Við gengum svolítið blint í þetta,“ segir hann. Sökum þess hve gömul upprunalega sundlaugin var voru engar teikningar af henni til og takmarkaðar upplýsingar fyrir hendi. SKÓLASUND Í RENNIBRAUTALAUG Gamla innilaugin hefur verið lokuð vegna framkvæmda frá því í október árið 2024.