Líkur á að samningur verði fullkláraður á næsta sólarhringnum

Líkur eru á að Bandaríkin og Íran skrifi undir samning á næsta sólarhringnum, frá þessu greindi forsætisráðherra Pakistans nú skömmu fyrir fréttir. Ísraelsher hefur haldið áfram árásum á Líbanon í dag.Fimm hið minnsta hafa verið drepin í árásum Ísraela í Suður-Líbanon í morgun. Ísraelsher hefur í dag skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja norður, yfir ána Zahrani. Talið er að Líbanon sé hluti af friðarsamningi Írans og Bandaríkjanna sem er sagður svo gott sem tilbúinn.Stjórnvöld í Pakistan hafa verið í aðalhlutverki við að miðla málum milli ríkjanna tveggja síðustu vikur og skömmu fyrir hádegið birti forsætisráðherrann Shehbaz Sharif færslu á X.Sharif segir líkur á að samningurinn verði fullkláraður á næstu 24 klukkustundum og verið sé að útbúa rafræna undirritun sem fari fram um leið
Líkur á að samningur verði fullkláraður á næsta sólarhringnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd