Nafn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta var fjarlægt af framhlið Kennedy Center í Washington í nótt, hálfu ári eftir að forsetinn lét bæta sínu eigin nafni við nafn þessarar víðfrægu menningarstofnunar, sem stofnuð var í minningu Johns F. Kennedys forseta sem var ráðinn af dögum í nóvember 1963.Nafnabreytingin olli nokkrum úlfaþyt á sínum tíma en Trump skipaði sjálfan sig stjórnarformann miðstöðvarinnar eftir að hann tók aftur við embætti.Stjórnin samþykkti nýtt nafn, The Donald J. Trump and The John F. Kennedy Memorial Center for the Performing Arts, í desember og strax daginn eftir var tekið til við að bæta nafni forsetans við á framhlið hússins.Listamenn brugðust margir ókvæða við þessum breytingum.Samkvæmt nýlegum dómsúrskurði þurfti að fjarlægja nafnið, enda má ekki breyta nafni stofnun