Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott.