Lítið grisjað í frumskógi bílastæðaappa

Potturinn er brotinn í innheimtu bílastæðamála, sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í viðtali við RÚV í ágúst 2025. Afleiðingin væri frumskógur fyrir neytendur sem ættu erfitt með að átta sig á hvar og hvernig hægt væri að greiða. Skerpa þyrfti á upplýsingagjöf og setja ramma um innheimtu.„Neytandinn þarf að vita hvert verðið er fyrir fram, hver þjónustugjöld eru og hver möguleg vanskilagjöld eru, hvenær þau falla og hvernig á að greiða þetta. Og það er pottur brotinn, mögulega bara vegna þess að það vantar ákveðna samræmingu. Gjaldtakan ein og sér er ekkert endilega deilt. Það kostar að byggja og reka bílastæði og þetta er of mikilvægur þáttur í þeirri þjónustu sem verið er að veita. En það er síðan innheimtan, og þar þarf einfaldlega að standa betur að málum, skerpa þetta,
Lítið grisjað í frumskógi bílastæðaappa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd