Nýlega er lokið tilraun sem gerð var til þess að veiða krabba í gildrur hér við land. Brim hf. tók írskan krabbabát ásamt áhöfn á leigu til þessa verkefnis og stóðu tilraunaveiðarnar yfir frá miðjum júlí og fram undir miðjan ágúst. Frá þessu sagði í Fiskifréttum 26. ágúst 2005.