Tæknifyrirtækið Anthropic hefur tekið tvö öflug gervigreindarlíkön sín úr notkun. Yfirvöld í Bandaríkjunum skipuðu fyrirtækinu að loka fyrir aðgang erlendra ríkisborgara að líkönunum og segja þau geta stefnt þjóðaröryggi í hættu.Bannið nær einnig til erlendra ríkisborgara í Bandaríkjunum og erlendra ríkisborgara í starfsliði fyrirtækisins.Í tilkynningu frá Anthropic segir að lokað hafi verið fyrir notkun á gervigreindarlíkönunum Fable 5 og Mythos 5. Fyrirtækið hafi ekki fengið frekari lýsingar á því hvernig líkönin ógni þjóðaröryggi.Starfsfólk fyrirtækisins skilur það sem svo að stjórnvöld telji að hægt sé að komast fram hjá varnagla í öryggisstillingum gervigreindarlíkana Anthropic sem koma í veg fyrir að þau séu notuð til að finna veikleika í öðrum hugbúnaði.Í tilkynningu Anthropic eru v