Þremur skemmtistöðum lokað snemma eftir aðgerðir lögreglu og Skattsins

Í gærkvöldi og nótt stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rekstur öryggisþjónustu sem var ekki með starfsleyfi. Það var gert eftir aðgerðir sem lögreglan og Skatturinn réðust í á skemmtistöðum í Hafnarfirði og Reykjavík í gærkvöld og nótt.Tveir skemmtistaðir lokuðu dyrum sínum í kjölfarið því þeir voru dyravarðalausir eftir að lögregla stöðvaði rekstur öryggisþjónustunnar. Einum skemmtistað til viðbótar var lokað að beiðni skattsins. Í morgunpósti lögreglu segir að hún haldi eftirliti sínu og aðgerðum áfram á næstu dögum og vikum.Í tilkynningu lögreglunnar segir að 96 mál hafi ratað á hennar borð frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Þrír voru vistaðir í fangageymslum í morgunsárið.Í dagbók lögreglu segir að maður hafi veist að dyravörðum í miðborg Reykjavíkur. Hann var fluttu
Þremur skemmtistöðum lokað snemma eftir aðgerðir lögreglu og Skattsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd