Drápu leiðtoga venesúelskra glæpasamtaka

Bandaríkjaher drap í nótt Hector Guerrero Flores, leiðtoga venesúelsku glæpasamtakanna Tren de Aragua. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social.Glæpasamtökin rötuðu í heimsfréttirnar eftir að Trump sendi mörg hundruð liðsmenn þeirra úr landi. Þeir voru fluttir í fangelsi í El Salvador.Trump sagði árás hersins hafa verið gerða í náinni samvinnu við „vini okkar í Venesúela“. Þar vísar hann í stjórn Delcy Rodriguez en hún tók við sem forseti Venesúela til bráðabirgða eftir að Bandaríkin steyptu Nicolás Maduro af stóli í janúar.„Fyrir vikið eiga hryðjuverkamenn Tren de Aragua hvergi skjól lengur, hvorki í Venesúelu né annars staðar,“ skrifaði Trump á Truth Social. Hann tiltók ekki hvar árásin var gerð.Færslunni fylgir 10 sekúndna myndskeið. Þar
Drápu leiðtoga venesúelskra glæpasamtaka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd