Liðsmenn úkraínska hersins við æfingar.EPA / Press service of the 65th Mechanized Brigade HANDOUTEinn var drepinn og einn særðist í drónaárás Úkraínuhers á rússneska héraðið Bryansk. Árásin var gerð á þorp nærri úkraínsku landamærunum. Þetta hefur Reuters eftir héraðsstjóra Bryansk.Rússneski herinn segir að hann hafi skotið niður hundrað og áttatíu úkraínska dróna síðasta hálfa sólarhringinn.