Ísland hefur aldrei uppfyllt öll skilyrði fyrir því að fá að taka upp evru sem gjaldmiðil. Eignarverð á Íslandi myndi líklegast hækka við inngöngu í ESB og fríverslunarsamningur Íslands við Kína falla úr gildi.Þetta kemur fram í skýrslu um möguleg áhrif ESB-aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja sem hugveitan Evrópustraumur vann fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið. ÍSLAND MEST UPPFYLLT ÞRJÚ SKILYRÐI Evrópusambandið setur svokölluð Maastricht-skilyrði sem forsendur þess að ríki megi taka upp gjaldmiðilinn evru. Skilyrðin eru fjögur en eitt þeirra, sem snýr að afkomu og skuldum hins opinbera, er þó tvíþætt. Mest hefur Ísland uppfyllt þrjú skilyrði, síðast í fyrra. Auk Maastricht-skilyrðanna þarf að samræma löggjöf ríkisins, seðlabankalög þar með talin, a