Fjármálaáætlun var tekin til síðari umræðu á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan fer fram á að umræðum verði frestað meðan tölur eru endurreiknaðar vegna breyttra horfa í efnahagsmálum. Meirihlutinn leggur áherslu á að fjárlög næsta árs verði hallalaus, skilvirkni í ríkisrekstri verði meiri og hagvöxtur á mann aukinn.