Aðildarviðræður Úkraínu og ESB hefjast fyrir alvöru á ríkjaráðstefnu í Lúxemborg á mánudaginn. Í tilkynningu frá leiðtogaráði ESB segir að á ráðstefnunni verði fyrstu samningskaflarnir opnaðir, en þeir fjalla um grundvallarreglur Evrópusambandsins, þar á meðal réttarríkið, lýðræðislegar stofnanir, umbætur í stofnanakerfi landsins og fleira. Úkraína sótti um ESB-aðild eftir innrás Rússa 2022 og varð formlega umsóknarríki síðar sama ár. Fyrir tæpu ári síðan voru samingaviðræður opnaðar með formlegum hætti, en nú eru tímamót þar sem vinnan hefst fyfir alvöru.Ungverjaland stóð lengi i vegi fyrir aðildarferli Úkraínu, en allt breyttist með stjórnarskiptum þar í vor. Þá tók Peter Magyar við af Viktor Orban sem var mótfallinn aðildarviðræðum við Úkraínu. Í dag voru líka tímamót fyrir Moldóvu, en