Samgönguáætlun samþykkt

Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 var samþykkt á Alþingi í dag með 33 atkvæðum meirihlutans. 23 þingmenn sátu hjá og sjö voru fjarstaddir. Í tillkynningu á vef stjórnarráðsins segir að meginmarkmið nýrrar samgönguáætlunar sé að auka framlög til viðhalds vega, hefja stórframkvæmdir og bora jarðgöng á ný.Fljótagöng voru efst í forgangslista, þar á eftir Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán í Vesturbyggð.Fleiri gangnakostir verði áfram til skoðunar, en stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027. Framlög til viðhalds vega landsins munu aukast verulega. Síðustu ár hafa framlög verið um 12-13 milljarðar króna á ári en hækka í 17,5 milljarða strax í ár. Þá mun meira fé verða veitt til
Samgönguáætlun samþykkt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd