Á kynningarfundi Hafrannsóknastofnunar í morgun á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár, lýsti Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur á botnsjávarsviði Hafró, hugmyndum um verndun á stórum hluta landgrunnsins undan Suðurlandi. Friðlýsingin næði yfir landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri og niður fyrir gil og hryggi sem skera landgrunnskantinn.„Við höfum haft upplýsingar í alllangan tíma um að þarna eru kórallasvæði, eða það er að segja það er kórall þarna inni á þessu svæði,“ segir Steinunn Hilma. „Við byggjum bæði á eldri rannsóknum þar sem urðu til skráningar á fundarstöðum kóralla lengra aftur í tímann, en síðan höfum við, frá 2004 til 2005, verið markvisst að kortleggja búsvæði á hafsbotni og í landgrunnshlíðunum hérn