Ekki óeðlilegt að leikskólastjóri sé ekki upplýstur um fyrirhugað niðurrif

Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri leikskólamála Reykjavíkurborgar, segir það ekki óeðlilegt að skólastjóri leikskólans Ægisborgar hafi ekki verið upplýstur um áform um að rífa húsnæði skólans og byggja nýtt á sömu lóð.Ásmundur Kristberg, skólastjóri Ægisborgar, vildi ekki veita fréttastofu viðtal en staðfesti hann hafi ekki vitað af áformunum.Ólafur Brynjar segir að það sé borgarstjórnar ásamt umhverfis- og skipulagsráði að taka ákvörðun um slíkar framkvæmdir. Leikskólastjórar séu hins vegar hafðir með í ráðum þegar kemur að atriðum eins og hönnun og kaupum á tækjum og áhöldum. Hann sagði ákvörðunina ekki tekna fram hjá Ásmundi og að algjör endurnýjun á húsnæðinu hafi staðið til í nokkur ár.Morgunblaðið sagði frá því í gærmorgun að borgaryfirvöld hefðu samþykkt að auglýsa tillögu
Ekki óeðlilegt að leikskólastjóri sé ekki upplýstur um fyrirhugað niðurrif

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd