Davíð Arnar Stefánsson, varaformaður Landverndar, segir gagnrýni Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafa komið á óvart.Ráðherra sakaði Landvernd um upplýsingaóreiðu og að grafa undan trausti til stofnana eftir að samtökin gagnrýndu nýlegar lagabreytingar um jarðboranir í kjölfar mengunar í Varmá sem varð af borframkvæmdum í Skammadal.Davíð segir hart af ráðherra að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu. Upplýsingaóreiða vinni aldrei með málstað náttúruverndar. EKKERT SAMHENGI MILLI MENGUNAR OG LAGABREYTINGA Ráðherra segir ekkert samhengi milli mengunarinnar og lagabreytinganna. Borframkvæmdir sem ollu menguninni hafi farið fram á grundvelli leyfa sem voru gefin út áður en lagabreytingar voru samþykktar.„Eftir sem áður þá er borað eftir að regluger