Lagið Lyse nætter með söngkonunni Alberte Winding var valið besta danska lag allra tíma í sérstakri kosningu danska ríkisútvarpsins.Þessi ljúfa ballaða sló í gegn þegar hún kom fyrst út árið 1991 en varð svo aftur vinsæl í heimsfaraldrinum árið 2020. Þá var það mikið sungið fyrir framan sjónvarpsskjái og úr háaloftum og svölum þegar Danir sameinuðust í söng til að gera lífið bærilegra í þeirri einangrun sem heimsfaraldurinn skapaði.Alberte sagði sjálf eftir að úrslitin voru kynnt að ástæðan fyrir því að lagið hreppti hnossið væri líklega að lagið hentaði vel í samsöng í skírnarathöfnum, brúðkaupum, jarðarförum og öðrum sambærilegum athöfnum. Lagið samdi hún sem saknaðarljóð, bæði til bróður síns sem hafði búið lengi í Bandaríkjunum og til móður sinnar sem svipti sig lífi þegar Alberte var