Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu

Stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu lítur fyrst til Ráðhúss Reykjavíkur, til dæmis breytinga á skrifstofu borgarstjóra, í aðgerðum sínum. „Við horfum til þess sem er okkur næst til að byrja með,“ segir Róbert Ragnarsson, formaður hópsins. FUNDUÐU MEÐ SVIÐSSTJÓRUM Í GÆR Hópurinn var skipaður á borgarráðsfundi í gær. Í honum eru oddvitar allra flokka, að undanskildum Sósíalistaflokknum og Vinstrinu, auk Róberts sem er formaður hópsins.Fyrsta skref þeirra var að funda með öllum sviðsstjórum og kalla eftir gögnum og hagræðingartillögum sem þegar eru til í borgarkerfinu.„Við horfum til, eins og kemur fram inni á verkefnalistanum, að gera ákveðnar breytingar á skrifstofu borgarstjóra,“ segir Róbert og á þar við síðuna verkefnalisti.is þar sem fjallað er um áform nýs meirihluta í borginni
Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd