Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum

Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri.Lögreglumaðurinn Gunnar Axel Davíðsson stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hver er staðan á rannsókninni núna og hvenær á henni að ljúka? „Þetta bara tekur tíma. [...] Það hyllir undir lokin. Einhvern tímann þarf allt að enda. [...] Á næstu mánuðum þá er markmiðið að senda þetta frá okkur til héraðssaksóknara,“ segir hann í samtali við fréttastofu.Fjallað er um rannsóknina á Quang Lé og stöðu hennar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þar er rætt við Gunnar Axel og fréttakonu RÚV, Urði Örlygsdóttur, sem fjallaði um málið í Kveik í mars
Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd