Athugði: Hér að neðan eru opinskáar lýsingar á ofbeldi sem gætu valdið óhug.Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra, sagðist við aðalmeðferð málsins í dag ekki hafa kyrkt dóttur sína þegar hún var drepin.Í ákæru á hendur henni og eiginmanni hennar er þeim gefið að sök að hafa haldið dóttur hennar fastri með því að grípa um hægri upphandlegg hennar og brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar í drjúga stund. Af þessu á hún að hafa hlotið urmul punktblæðinga á hálsi og í andliti.Mancel vildi lítið tjá sig um þetta þegar hún var spurð fyrir dómi hvort hún vissi til þess að dóttir hennar hefði verið kyrkt. Hún sagði að ef lögregla segði það hafa gerst þá hlyti það að vera svo. Hins vegar sagðist hún sjálf ekki hafa kyr