Ónafngreindur embættismaður í Hvíta húsinu hefur gefið helstu fjölmiðlum upplýsingar um innihald samnings Bandaríkjanna og Íran sem er í nokkru ósamræmi við það sem birtist í íranska ríkisfjölmiðlinum í morgun.Þar kom meðal annars fram að Íran fengi áfram að auðga úran, að þeir héldu áfram stjórn á Hormússundi og að frystingu eigna yrði aflétt.Samkvæmt Hvíta húsinu eru helstu efnisatriði þau að Íranar samþykkja að hætta kjarnorkuáætlun sinni og eyða öllum kjarnorkuefnum sínum. Hormússund verður opnað á ný, engum frystingum íranskra fjármuna verður aflétt fyrr en þeir sýna í verki að þeir standi við samninginn og Íranar hætta að fjármagna hryðjuverkahópa.Embættismaðurinn sagði jafnframt að framvinda samningsins byggðist á því hvernig Íranar standa sig í að fylgja honum.Abbas Araqchi utanrík