Skrifstofur Hagkaupa opnuðu aftur með eðlilegum hætti í morgun eftir að rýma þurfti þær í gær eftir alvarlega hótun. Lögregla hefur tilkynnt starfsfólki fyrirtækisins að þau hafi að öllum líkinum fundið hver hafi verið að baki hótuninni en viðkomandi er staddur erlendis.