Listamaðurinn David Hockney látinn

Einn áhrifamesti listamaður samtímans, Bretinn David Hockney, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu 88 ára að aldri og skilur eftir sig maka sinn Jean-Pierre Gonçalves de Lima.Hockney var einn af forsprökkum popplistahreyfingarinnar á sjöunda áratugnum.Hann er hvað þekktastur fyrir verkin A Bigger Splash og Portrait of an Artist. Árið 2018 var það síðarnefnda selt fyrir 70 milljónir punda, sem eru nær tólf milljarðar íslenskra króna, á uppboði og varð þannig dýrasta verk sem hafði verið selt eftir listamann á lífi á þeim tíma.List Hockney var byltingarkennd á tíma þegar samkynja sambönd voru refsiverð þar sem hann lýsti gjarna heimilislífi samkynja para í verkum sínum.Ferill Hockneys spannar sex áratugi og á þeim tíma einskorðaði hann sig ekki við einn stíl eða miðil. Hann er þekktur f
Listamaðurinn David Hockney látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd