Hákon krónprins tók ekki þátt í ríkisráðsfundi í Noregi í dag vegna veikinda Mette-Marit eiginkonu sinnar. Vika er síðan tilkynnt var að krónprinsessan væri komin á biðlista eftir lungnaígræðslu vegna ólæknandi lungnasjúkdóms sem hún er haldin.Hákon hefur reglulega tekið þátt í ríkisráðsfundum sem ríkisstjórnin og konungurinn sitja. Til stóð að hann sæti fundinn í dag. Aftenposten greindi fyrst frá því hann að yrði ekki á fundinum og fjölmiðlafulltrúi konungshallarinnar staðfesti við NRK að krónprinsinn hefði breytt áformum sínum til að geta verið við hlið konu sinnar í veikindum hennar.Í gær voru hátíðahöld í tilefni af 25 ára afmæli sjóðs sem var stofnaður þegar þau gengu í hjónaband. Hákon var þar einn. „Hana vantar sárlega hér í dag,“ sagði hann við það tækifæri.Krónprinshjónin eiga si