Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. Lögregla sendi einnig bíla á staðinn.Þegar slökkvilið kom á staðinn virtist sem ekki væri jafn mikil hætta á ferðum og óttast var í fyrstu.Eldur kviknaði í gömlu raftæki inni í húsinu. Eldurinn reyndist ekki mikill og slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva hann. Þeir tóku síðan til við að reykræsta húsið.Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd