Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn

Viðhald og málningarvinna við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur tekið lengri tíma en til stóð. Verkið hófst 26. maí og átti að ljúka 16. júní. Mikil úrkoma hefur tafið málningarvinnu og því er ljóst að henni lýkur ekki fyrr en undir lok mánaðar. Hún getur raunar tafist enn meira ef heldur áfram að rigna.Brúin er nærri 80 ára gömul, byggð 1947 og þarfnaðist mjög viðhalds. Kaplarnir eru orðnir nokkuð ryðgaðir og segir Vegagerðin að nauðsynlegt hafi verið að koma sem fyrst í veg fyrir meira ryð.Búið er að sandblása burðarkapla brúarinnar og grunna um helming þeirra. Grunna þarf tvær umferðir og lakka lokaumferð. Nota þarf pensla við allt verkið svo að tryggt sé að yfirborð burðarkaplanna lokist fullkomlega.Lokað er fyrir bílaumferð um brúna frá 8 til 19 meðan á vinnu stendur. Opnað er fyrir
Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd