Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. Lögregla sendi einnig bíla á staðinn. Þegar slökkvilið kom á staðinn virtist sem ekki væri jafn mikil hætta á ferðum og óttast var í fyrstu. Slökkviliðsmenn eru að kanna aðstæður. Fréttin verður uppfærð.