„Þorskurinn lítur ágætlega út“

Hafrannsóknastofnun leggur til, í veiðiráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár sem kynnt var í dag, að veiðiheimildir á ýsu, ufsa og síld verði minnkaðar á næsta ári.Heimildir á ýsu dragist saman um 20%, ufsi um 16% og síldveiðiheimildir um 22%.Þorskur hefur ekki stækkað sem skyldi síðustu ár og því er lagt til að veitt verði svipað magn úr stofninum og á yfirstandandi vertíð. Það horfir þó til bóta, þar sem búist er við góðri loðnugengd næsta haust sem er mikilvægt æti fyrir þorskinn.„Þorskurinn lítur ágætlega út. Við búumst við því að hann verði á svipuðu róli á næsta ári. Ýsan, þar erum við að sjá góða nýliðun árið 2025 þannig að við búumst við því að stofnstærðin fari vaxandi. Við búumst ekki við neinum breytingum í ufsanum,“ segir Bjarki Þór Elvarsson, fagstjóri ráðgjafar hjá Hafrannsóknast
„Þorskurinn lítur ágætlega út“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd