Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir að verða dóttur sinni að bana ásamt manni sínum á Edition-hótelinu á síðasta ári, segir að dóttir sín hafi tekið virkan þátt í dauða sínum. Hún hafi sagt við foreldra sína að hún myndi vilja deyja fyrst.Aðalmeðferð í Edition-málinu hófst í morgun þar sem Mancel svarar til saka. Hún var fyrst í vitnastúku og hefur vitnaleiðsla hennar verið nokkuð löng og ítarleg. Hún hófst stuttu eftir klukkan 10:00 í dag og stendur hún enn þegar þessi frétt er skrifuð. Líklegt er að vitnaleiðslan standi vel áfram inn í daginn.Til stendur að vitni komi fyrir dóminn eftir það en ólíklegt þykir að það náist að taka skýrslu af þeim öllum í dag. Málinu verður framhaldið á þriðjudag eftir helgi.Mancel er ein til frásagnar af því sem gerðist þar sem bæði dóttir hennar og maður