Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tilkynnt bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu að til standi að fækka töluvert herþotum, flugvélum og herskipum í Evrópu. Um er að ræða hersveitir sem tekið hafa þátt í aðgerðum NATO í gegnum áratugina og stendur meðal annars til að fækka orrustuþotum í Evrópu um þriðjung.