Borgin segir upp nýgerðum samningi um hjólhýsabyggð í Gufunesi

Borgarráð samþykkti í gær að nýta uppsagnarákvæði í samningi um hjólhýsabyggð sem reisa átti í Gufunesi. Samningur borgarinnar við Samtök hjólabúa var gerður í apríl og undirritaður í maí, skömmu fyrir kosningar. Þáverandi meirihluti studdi að samtökin fengju afnot af 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi. Þangað átti að flytja hjólhýsabyggð sem hefur verið í Sævarhöfða. Einnig átti að tengja byggðina við vatn og rafmagn auk þess að koma upp salernum og sturtuaðstöðu í gámum. Nýr meirihluti í borgarstjórn sem tók við völdum eftir kosningar ákvað að nýta ákvæði í samningnum um að segja honum upp með þriggja mánaða fyrirvara. Ákvörðunin var formlega tekin á borgarráðsfundi í gær og hefur Samtökum hjólabúa verið tilkynnt um uppsögnina.Fimm borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og F
Borgin segir upp nýgerðum samningi um hjólhýsabyggð í Gufunesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd