Drög að samkomulagi milli Írana og Bandaríkjanna um frið hafa verið birt í íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA í dag. Miðað við þá frétt hafa Íranar fengið flest sem þeir hafa beðið um, en hvorki írönsk né bandarísk yfirvöld hafa staðfest þetta formlega.Samkvæmt fréttinni fela drögin í sér að öllum stríðsátökum ljúki - líka stríðinu í Líbanon milli Ísraelsmanna og Hezbollah-samtakanna. Íran opni Hormússund en haldi áfram stjórn á því, frystingu á um 24 milljarða dollara eignum Írans verði aflétt og 60 daga frestur verði gefinn til að semja um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir megi áfram auðga úran.Að auki verði viðskiptaþvingunum á sölu olíu og efnavara frá Íran aflétt og hafnbanninu sem Bandaríkin hafa viðhaldið á Íran í tæpa tvo mánuði verði líka aflétt. Þá þurfi Bandaríkin að greiða Íran minnst 30