Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borginni boðar fjölda nýrra aðgerða í skólamálum á kjörtímabilinu þar sem mikil áhersla verður lögð á mælingar.Meðal þess sem borgarstjórnin vill ráðast í er að innleiða samræmt námsmat fyrir alla bekki auk samræmds lokaprófs úr grunnskóla.Þetta má sjá á tímasettum verkefnalista sem meirihlutinn birti. Mun ný borgarstjórn gefa sér allt frá hundrað dögum upp í fjögur ár til að klára hverja aðgerð.Á verkefnalistanum má einnig finna loforð um að efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk dagheimila og leikskóla, mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi, tilraunaverkefni um símafrí í grunnskólum, einkunnagjöf á talnakvarða, læsisátak, opinbera birtingu niðurstaðna úr PISA og samræmdum mælingum grunnskólanna, og bættan námsgagnakos