Hafrannsóknastofnun leggur til minni veiði af þorski, ýsu, ufsa og síld á næsta fiskveiðiári en stóreykur veiðiráðgjöf sína í loðnu. Stofnunin kynnti veiðiráðgjöf sína í morgun. Samkvæmt henni dregst þorskveiði saman um eitt prósent, veiði á ufsa um 16 prósent og ýsuveiði um 20 prósent. Jafnframt er veiðiráðgjöfin í sumargotssíld 22 prósentum lægri en á síðustu vertíð. Vísindamenn Hafrannsóknastofnunar gera ekki ráð fyrir að ráðlagður heildarafli þorsks aukist næstu tvö til þrjú árin vegna slakra árganga 2021 og 2022 og hægs vaxtar árganganna á undan.Tíðindin eru betri þegar kemur að loðnu. Þar var útlit fyrir afskaplega slæma vertíð á þessu ári áður en loðnukvótinn var nærri fimmfaldaður og varð 197 þúsund tonn. Veiðiráðgjöfin hækkar nú um 81 prósent en getur tekið breytingum að lokinni h