Flugmaður hjá Icelandair segir nýtt tilboð félagsins í kjaradeilu við flugmenn fela í sér meira vinnuálag, minni vernd í kringum hvíld og launalækkanir. Hann segir deiluna ekki snúast um kröfu flugmanna um hærri laun, heldur hvort þeir geti yfirhöfuð ráðið við álagið til lengri tíma.