Drög að snjalltækjareglum í skólum kynnt til samráðs

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.Í tilkynningu ráðuneytisins segir að reglugerðin nái einnig til frístundaheimila og tómstunda- og félagsstarfs.Markmið hennar sé að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum, ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina.Í drögunum er meðal annars lagt til að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla verði óheimil á skólatíma. Þá skuli slík tæki geymd á fyrir fram ákveðnum stað á skólatíma sem ekki er aðgengilegur nemendum, í þar til gerðum skápum, hólfum eða geymslukössum.Fram kemur í drögum reglugerðarinnar að nemendur fái tækifæri til að taka þátt í innleiðingu og framkvæmd he
Drög að snjalltækjareglum í skólum kynnt til samráðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd