Telja brottfararstöð auka hættu á mannréttindabrotum

Íslandsdeild Amnesty International sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún lýsir ótta um að nýsamþykkt lög um brottfararstöð feli í sér aukna hættu á mannréttindabrotum.Samtökin segja að með þessu hafi stjórnvöld heimilað frelsissviptingu fólks sem ekki hafi gerst sekt um refsiverða háttsemi. Þetta sé oft fólk sem hafi leitað hingað eftir vernd og sé þegar í viðkvæmri stöðu og eigi erfitt með að tryggja réttindi sín.Frelsissvipting barna veldur Amnesty sérstökum áhyggjum og segja þau að slíkt samrýmist ekki skuldbindingum Íslands samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Barn á leiksvæði.Þórgunnur Oddsdóttir
Telja brottfararstöð auka hættu á mannréttindabrotum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd