Eldsneytisverð lækkar vegna friðarvona

Olíuverð lækkaði á heimsmörkuðum í dag. Ástæðan er aukin bjartsýni og vonir um frið við Persaflóa. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, boðaði í gær stórfelldar árásir á Íran en hætti síðan við. Trump sagði þá að sátt hefði náðst milli Bandaríkjanna og Írans en Íranir gengu heldur skemur í sínum yfirlýsingum.Olíuverð lækkaði um fimm prósent á Brent-markaðnum fyrir Norðursjávarolíu og jafn mikið á West Texas Intermediate-markaðnum. Verðið er tæpir 86 dollarar fyrir fatið á Brent-markaðnum en rúmir 83 hjá West Texas.Vonir hafa glæðst um að Hormússund verði opnað fyrir umferð flutningaskipa.Eldsneytisverð hefur hækkað eftir að stríð hófst milli Bandaríkjanna og Írans.AP / David Zalubowski
Eldsneytisverð lækkar vegna friðarvona

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd