Í árslok 2025 var 2.651 barn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis kemur fram að meirihluti þeirra hafði þá beðið eftir þjónustu í meira en ár og um 11 prósent í meira en þrjú ár. Drengir voru almennt yngri en stúlkur á biðlista.