Líkur eru á að samkomulag um þinglok náist í dag og að þingstörfum ljúki í næstu viku. Þingstörfum átti að ljúka í dag samkvæmt starfsáætlun Alþingis en Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók áætlunina úr sambandi þegar ljóst varð að það tækist ekki. Þingflokksformenn hafa freistað þess síðustu daga að semja um þinglok og slíkt samkomulag er nú að mestu í höfn. Helst hefur verið tekist á um hvernig ætti að ljúka samgönguáætlun, fjármálaáætlun og lögum um innviðafélag. Formenn þingflokka sem fréttastofa hefur rætt við segja að allt sé að smella. Þingstörfum verður þá haldið áfram eitthvað fram í næstu viku.