Karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag fyrir vörslu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn var með sjö ljósmyndir og þrjú myndskeið í tölvum sínum og farsíma.Maðurinn játaði brot sitt. Hann hlaut 30 daga skilorðsbundna fangelsisrefsingu. Auk þess voru tölva hans, farsími og spjaldtölva gerð upptæk. Hann var einnig dæmdur til að greiða málsvarnarlaun sín, 353 þúsund krónur.Héraðsdómur Reykjavíkur.RÚV / Ragnar Visage