EES ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Lichtenstein eru hluti af því markaðssvæði sem Evrópusambandið skilgreinir í löggjafartillögu sem snýst um að styrkja iðnaðarframleiðslu, draga hraðar úr mengun og styrkja aðfangakeðjur í álfunni. Þetta hefur RÚV fengið staðfest hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.Löggjafartillagan heitir á ensku Industrial Accelerator Act, sem þýtt hefur verið sem Iðnaðarhraðall á íslensku.Tillagan var lögð fram af framkvæmdastjórn ESB í mars. Í henni er lagt til að þegar komi að ríkisaðstoð og opinberum innkaupum í tilteknum mikilvægum iðnaði, til dæmis stál, ál og sementsvinnslu, verði gerðar gerðar kröfur um að ákveðið hlutfall af umræddum vörum sé framleitt í Evrópu (Made in Europe) og með umhverfisvænum hætti.Fjallað var um þessa tillögu í Brussel-vaktinni í mars