Hitinn gæti farið í 20 stig í fyrsta skipti í sumar

Hiti gæti farið í 20 stig í dag í fyrsta skipti í sumar. Líklegast er að það gerist á Suðurlandi eða á höfuðborgarsvæðinu. Rignt hefur sunnan- og vestanlands í nótt en það léttir til þegar kemur fram á daginn og þá verður hitinn á bilinu 13 til 20 stig. Í norðaustur- og norðvesturfjórðungi verður þungbúið veður með þokusúld og 6 til 10 stiga hita.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustan og norðan fimm til þrettán metrar á sekúndu. Léttir til sunnan- og vestanlands þegar kemur fram á daginn með hita 13 til 20 stig. Þokusúld eða dálítil rigning norðaustantil og við norðvesturströndina og hiti 6 til 10 stig á þeim slóðum.Breytileg átt þrír til átta á morgun. Víða bjartviðri á landinu, en rofar til á Austurlandi eftir hádegi. Hiti yfirleitt á bilinu 12 til 18 stig.
Hitinn gæti farið í 20 stig í fyrsta skipti í sumar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd