Hafnar málflutningi Landverndar um mengun í Varmá

Jóhann Páll Jóhannsson umverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekkert samhengi á milli nýlegra lagabreytinga um jarðboranir og mengunar sem orðið hefur vart í Varmá í Mosfellsbæ. Hann segir borframkvæmdirnar sem ollu menguninni hafa farið fram á grundvelli leyfa sem voru gefin út áður en lagabreytingar voru samþykktar. „Það er ekki nokkur leið að álykta með skynsamlegum hætti um orsakasamband þarna á milli,“ skrifar Jóhann Páll í færslu á Facebook.Landvernd skoraði í vikunni á stjórnvöld að falla frá lagabreytingunum. Í ályktun félagsins segir að breytingunum sé ætlað að greiða götu framkvæmdaaðila og að það sé óheillaspor að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna. Með flýtimeðferðum og afnámi eða veikingu eftirlits aukist áhætta á mengun. LANDVERND SEGIR FULLA ÁSTÆÐU TIL
Hafnar málflutningi Landverndar um mengun í Varmá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd